Á síðasta degi ársins er við hæfi að rifja upp árið.
Janúar: Byrjaði með pompi og prakt strákurinn útskrifaðist frá MÍ og kom sér og sínum á óvart hehe;) Hélt svo til Egilsstaða eftir jólafríið en núna með nýjum sambýlingi að nafni Halldór Ingi Skarphépinsson og var það upphafið að skrautlegu sambýli en nú samt góðu. Ég réð mig líka í nýja vinnu hjá Landflutningum á egs og það var upphaf af einu því skemmtilegasta sem ég gerði þarna.
Febrúar:Nýja vinnan byrjaði af krafti og ég var fljótur að kynnast strákunum þarna og fljótur að kenna þeim nýjar vitleysur og svona en það var nú bara gaman af því, það voru viðbrygði að byrja að vinna og þarna var allt brjálað að gera vegna uppsveiflunar þarna fyrir austan en það þýddi bara að peningarnir kæmu inn í kassan:). Enda stóð það ekki á sér að það var búið að fjárfesta í fótbotaferð til Manchester með Hemma og Karitas í mars á leik Man.Utd vs. Birmingham. Auk þess má gera þess að við fórum í keppnisferð suður og þegar við komum til baka var búið að þrífa íbúðina:D takk Erla
Mars: Já þessi mánuður byrjaði skrautlega við sambýlingarnir lögðumst í flensuna og vorum veikir í viku, þetta var það versta sem ég hef fengið í mörg ár, var bara alveg frá:D. Við dóri misstum af fyrsta leiknum með hetti í deildarbikarnum eftir stífar æfingar, mættum kl 6 á morgnanna á æfingar vorum plús það að við vorum í stífu prógrammi í body pump og spinnig og á þessum tíma hafði Dóri æft betur en ég þorði að vona og ég hélt að það væri kominn nýr dóri:). Ég fór samt út í lönd á leikinn og hann endaði 3-0 fyrir United og þetta var hreint mögnuð ferð í alla staði og ég þakka Karitas og Hemma kærlega fyrir hana.
Apríl: Afmælismánuður fyrir all nokkra og maður kominn á þrítugsaldurinn og farin að þroskast í eðlilega átt eða hvað? ég naut þess einnig að fara vestur um páskanna og hitta vini og fjölskyldu og það var dásamlegt í alla staði. Og strákarnir skutu sér sjálfum upp á stjörnuhimininn eftir stóra grein í BB:)
Maí: Ný bloggsíða komin á laggirnar og ný skref stígin í átt að fullkomnum. Hitin og sumarið var farið að gera vart við sig og 18 -20 stiga hiti var ekki e-ð sem maður bjóst við alveg svakalegt. Svo minnir mig að JAKKIÐ hafi komið sér til egilsstaða um þetta leiti og svo sannarlega tröll reið öllu þar á héraði.
Júni: Enn einn sambýlingur kom að vestan til okkar fyrir austan og bara gaman að því, þessi mánuður var samt einn af þeim erfiðari því að ég spilaði einu mínúturnar fyrir hött þarna þær voru e-ð á milli 3-5, ég var ekki sáttur og hætti að æfa í lok þessar mánaðar enda ekki fyrir mann sem æfir eins og vitleysingur allan veturinn og uppsker svo ekkert bara ekki neitt. En þýðir ekkert að væla svo við skulum fara yfir í næsta mánuð, samt verð ég að segja það að mamma, pabbi, aron, alma, hlynur og helga komu í heimsókn og lyftu manni aðeins upp:)
Júlí: Var bara að vinna þennan mánuðinn og þénaði helling:) Dóri hefur gert einhverjar rósir þennan mánuðinn eins og honum einum var lagið.
Ágúst: Ákvað að flytja aftur heim í lok þessa mánaðar, skipti yfir í BÍ og skráði mig í meiraprófið. Fór suður, kláraði að pakka niður og var ánægður með allt saman ekki hægt að segja annað. Dóri gerði allt vitlaust í eyjum og týdni öllu sínu:D
September: Byrjaði í meiraprófinu, fór austur og náði í restina af dótinu mínu, kvaddi alla þá sem ég hafði kynnst amk meiri hlutan og fór frá vinnustaðnum heavy hearted en svona er þetta nú. Kláraði meiraprófið með stæl, fékk vinnu hjá sambó fyrir vestan.
Október: Mánuður sem ég vill ekkert vera að minnast með einhverjum rósum, hann gekk svona næstum bara sinn vanagang, vinna, byrja að æfa og sofa.
Nóvember: Tanið byrjað að koma á kjallinn, þetta er svona árviss atburður alltaf fyrir jólin:) æfði og æfði og var byrjaður að þjálfa 3.flokk karla hjá BÍ.
Desember: Vinna vinna og vinna hef aldrei vitað annað ég bara gleymdi mér í henni og áður en ég vissi af þá var bara komið að jólum og ég átti eftir að kaupa gjafir og fara í klippningu en það reddaðist allt og ég gat haldið gleðileg jól og allir sáttir ;) Mánuðurinn hefur verið ánægjulegur og ég er ánægður með hann og bjartsýnn og fullur tilhlökkunar fyrir nýtt ár og hlakka til að takast á við nýja árið.
AÐ LOKUM VILL ÉG ÓSKA YKKUR ÖLLUM GLEÐILEGS NÝS ÁRS OG ÞAKKA FYRIR ALLT ÞAÐ GAMLA OG GÓÐA OG VONANDI EIGUM VIÐ EFTIR AÐ HITTAST OG SKEMMTA HVORT ÖÐRU Á ÁRINU 2007.
31. desember 2006 klukkan 21:59
Ásgeir Guðmundsson 5 athugasemdir
Já eins og einhver sagði verður maður að anna eftirspurn og ég tel þær vera orðnar ásættanlegar til þess að taka upp lyklaborðið og dusta rykið af því. Langur tími hefur liðið og kannski ekki ásættanlegt eða hvað? Gaman að sjá að meistarar austurlands hafa verið að koma hérna inn og skella inn kveðjum mætti halda að þeir séu farnir að fá einhvern tíma til að slaka á, kannski kominn tími á það að þeir fá einhvern frið því að ég hef aldrei á ævinni komið mér í jafn mikið brjálæði í vinnu og ágætis spark í rassinn að byrja feril minn á atvinnumarkaðinum þarna, og ég þakka þeim líka fyrir síðast við vorum nefnilega á árshátíð Samskipa þar sem var mikið fjör mikið gaman og svolitlu skvett í sig og menn stigu dansin eins og þeim væri borgað fyrir það. En nóg um það, hef verið að vinna og stunda æfingar á fullu sem og strákurinn hefur ákveðið að ná sér í smá tan fyrir jólin en það hefur byrjað með strökli hef ekki verið að stunda þetta e-ð á ævin minni en ákvað að taka smá skorpu núna og brendi mig svo harkalega í mínum öðrum tíma að ég gat varla sofið á næturnar, ég varð nefnilega að sofa á bakinu þar sem magin var eins á litin og jarðaber, og í hvert skipti sem ég var e-ð að bylta mér að þá vaknaði ég og rak upp öskur því mér sveið svo og dagin eftir að þá sá ég að lærin voru orðin eins og því labbaði ég eins og ég væri búinn að gera í buxurnar hehe ekki sú besta reynsla sem ég hef lent í. Í sömu viku lenti ég líka í því að fara í vinnunni vestur í súgandafjörð og pikk festa mig á Scaniunni og var þar að basla með bóndanum sem ég var hjá í þrjá tíma bara vegna þess að hann mokar aldrei hjá sem hlaðið nema þegar fóðurbíllinn kemur og lætur bévítans beljur fá e-ð til að éta, en maður verður að taka það góða út úr þessu ég t.d. var að keðja í fyrsta skipti fyrir þá sem vita hvað það er.
En jólin nálgast þó að þau hafi komið snemma eiginlega allt of snemma að mínu áliti í verslanir eins og húsasmiðjuna hvað er það að fá jólavörur og vera búin að setja það upp fyrir um 1 og hálfum mánuði? og varla koma því fyrir, spyr sá sem ekki veit eða er þetta bara ég?
Hondan mín hefur verið í stæðinu hérna heima síðan eftir fyrstu sjókomuna hef ekki ennþá veriða að spá í að setja nagladekkin undir en ætli það gerist ekki um helgina, hún verður að fá að njóta sín í snjónum, en ágætis sparnaður í þessu.
Mínir menn í Manchester United að koma öllum á óvart þessa daganna og toppa deildina um þessar mundir, ég er ánægður með þetta en bjóst samt ekki við þessu verð að segja það.
Að lokum ætla ég að setja inn svolítið sem ég hef séð á mörgum bloggsíðum hérna undanfarið vonandi að þið skemmtið ykkur vel og ég skelli inn bloggi vonandi fyrir jól
Ef lífið væri bíómynd - hvernig yrði lagalistinn þinn? Svona virkar þetta: 1. Opnaðu lagasafnið þitt (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, o.s.frv.) 2. Ýttu á uppstokkun (shuffle) 3. Ýttu á spila 4. Skrifðu nafnið á laginu og listamanninn hjá hverri spurningu 5. Þegar þú færð nýja spurningu ýttu þá á næsta lag 6. Ekki svindla og þykjast vera töff…
Þetta er lífið mitt: Opnunaratriði: Taktu til við að tvista - Stuðmenn Þegar þú vaknar: Borgin - Hjálmar Fyrsti skóladagurinn: Betri tíð - Stuðmenn Að verða ástfanginn: The letter Slagsmálalag: e-ð lag með Robbie Williams Að hætta saman: We ain´t - Eminem/game Árshátíð: Black hole sun - Soundgarden Lífið: Trúir þú á engla - bubbi Andlegt áfall (taugaáfall): Trouble- RW Að keyra: Not for forr all the love in the World - Thrills Afturhvarf (Flashback): Brake my stride - Blue Lagoon Að taka aftur saman: Hæstu hæðir - Skítamórall Brúðkaup: Ó maría remix - Kristína logos Fæðing barns: Babylon - David Gray Lokabarátta: Traustur Vinur - Á móti sól Dauðaatriðið: Start from the Scratch - Game Jarðarfararlag: Don´t panic - Coldplay Lokalag (credit listi): Sympathy for the Devil - Rolling stones
30. nóvember 2006 klukkan 19:00
Ásgeir Guðmundsson 2 athugasemdir
Jæja nú verður maður sko að fara að girða sig í brók eftir að hafa drulað upp á bak með allt saman eins og Brikir segjir svo oft. Ég er reyndar með góða afsökun fyrir þessu bloggleysi ég bara komst ekki inn æi stjórnborðið til þess að segja ykkur hvað lá á hjarta mínu, en hey tökum gleði okkar á ný því hér kemur ein sjóðheit:D. Síðan síðast er ég orðinn meiraprófsbílstjóri:) draumur síðan ég var 2ja ára upp á bolafjalli? kannski bara e-ð í genunum? En já sem sagt byrjaður að vinna við þetta sem er bara gaman að fá að horfa niður á alla hina í umferðinni kannski svolítið stórkallabrjálæði? hvað veit ég? Fékk sem sagt vinnu hjá landflutningum og líkar bara vel það er ekki jafn mikið að gera hér og fyrir austan þar sem maður var að vinna í 14 klukkustundir, hér eru það mest 12 ef það nær því. Þannig að ég hef tíma til að þjálfa líka og er að þjálfa 3 flokk karla BÍ/Bolungarvík og það eru ágætis strákar sem ég hef reyndar þjálfað áður eins og svo marga aðra sem eru að spila hjá BÍ, kom mér reyndar á óvart þegar ég var á uppskeruhátíðini hvað ég var búinn að þjálfa marga iðkendur hjá BÍ! það eru helst þeir sem eru að byrja að taka sín fyrstu skref og stelpur sem ég hef ekki verið að laga fótboltaskilning:) segi svona. En núna byrjar háksólaleitin eða framhaldsnámsleitin því ég stefni á það að fara í skóla næsta haust ef ég finn nám við hæfi, veit nefnilega ekkert hvað ég vil gera? hafið þið hugmyndir? Annars er bara allt í góðum gír hérna megin svona eins og aðstæður leyfa er að fara suður næstu helgi á árshátíð Samskipa og það verður án efa fjör og mikið gaman, hitti til dæmis alla sem eru að vinna fyrir austan og það verður ekki leiðinlegt:) en ég lofa að taka mig á núna og blogga reglulega:) Þangað til næst bið ég bara að heilsa ykkur! BBBBBÍBBBBBB BBBBB´´IÍÍÍÍBBBBBB:p
15. október 2006 klukkan 17:58
Ásgeir Guðmundsson 4 athugasemdir
Langt síðan og löng vegarlengd síðan maður skrifaði hérna inn síðast og mark skeð, ég er kominn aftur til Ísafjarðar og líður bara vel, er reyndar í höfuðborginni um helgar til að halda mínum námshæfileikum áfram:). Já mér gengur bara ágætlega í því, náði fyrsta prófinu og fékk þar af leiðandi að stíga upp í trukkinn og máta sætið og keyra um götur stórborgarinnar og fékk mjög góða umsögn fyrir 3 tíma aksturinn minn í gær. Ég keyrði svo heim á bílalaleigu bíl í gær Suzuki Jimmý! Ég hef samt ekki áttað mig á því afhverju þessir bílar eru framleiddir því þetta er verra en Tussainn fyrir austan (vinnustaðardjókur) hann var útum allan veg og var hálf vangefinn. En nú tekur bara við ein önnur vikan og vonandi fæ ég svar við vinnunni sem ég hef sótt um á landflutningum í vikunni og þá get ég farið að vinna, ekki það að ég verði e-ð ráðalaus ef það gegnur ekki eftir því BÍ vill fá mig sem þjálfara hjá 1 - 4 flokkum svo það er bara gott;). hef svo sem ekkert meira að segja bið að heilsa öllum fyrir austan þar með talið Dóra sem ég hlakka til að fá heim;) ætla skella hér inn mynd af trukknum ef ég finn hana á netinu. ekki alveg bíllinn en Scania:D
29. ágúst 2006 klukkan 16:37
Ásgeir Guðmundsson 8 athugasemdir
já eftir dágott sumarfrí hef ég ákveðið að skjóta inn einni færslu sem á að stikkla á stóru um hvað hefur gerst og hvað er að fara að gerast í mínu litla lífi. Nú svo við byrjum á vinnunni að þá hefur verið brjálað að gera í 2 mánuði stanslaust og sér ekki fyrir endan á því rugli og menn fara og koma úr fríi. Nú um verzló að þá verð ég bara hérna á Egils og ég og vera verðum í því að undirbúa flutninginn stóra, já þið lásuð rétt ég er að flytja heim og get ekki beðið er búinn að skipta aftur yfir í BÍ og hlakka bara til að fara heim! og ég verð komin heim um 21 ágúst. En við vera erum að fara suður á þriðjudaginn þar sem vera er að fara út til la spain og ég að fara í smá framhaldsnám í rvk sem tekur flestar helgar fram til sept. ég er að tala um meiraprófið sem mig hefur dreymt um að taka síðan ég var 3. ára í vörubílnum með pabba gamla og nú er sem sagt komið að því. En annars er bara allt í góðum málum hjá okkur við famillían í útgarði erum búin að vera dugleg í því að ferðast hérna í kring undanfarnar helgar enda mikið að skoða:) Dóri er nú á einu af sínu stærsta fylliríi ævi sinnar út í eyjum og síðast heyrði ég af kallinum að hann hafi komið heim um klukkan 10 í morgun, drukkinn og búinn að eyða dágóðum slatta af kúppu í bakaríinu. Svo næstu viku verður bara afslappandi að mestu verð þar í viku og hef það gott og byrja að læra aftur á föstudaginn, laugard., sunnud. og mánudaginn. og svo fer ég austur á þriðjudeginum og keyri aftur suður á fimmtudeginum og fer í skólan og fer svo endanlega heim til ísafjarðar 21 eða 22 ágúst fer efit r heilsu manna:)
En ekki meira í bili ætla að fara að halda áfram að pakka :D bið eð heilsa öllum
05. ágúst 2006 klukkan 01:44
Ásgeir Guðmundsson 5 athugasemdir
Já ég hef komist að því á síðustu vikum að lífið fer ekki alltaf alveg eins og maður ætlar sér! Ég hef t.d. séð það að maður uppsker ekki alltaf eins og maður sáir ég fór austur eins og flestir vita sem lesa þetta blogg og þekkja mig til að spila með Hetti í sumar en það sem af er sumri hef ég ekki náð að festa mig í sessi í liðinu og hef 2 þurft að horfa á leiki liðsins ofan úr stúkunni sem er allt annað en skemmtiilegt og það er ennþá verra að þegar ég sé hvað BÍ gengur vel og ég heyri hvað hópurin þar sé að smella og allir þar séu samstilltir og góðir saman, það kemur mér sjálfum ekkert á óvart því að hópurin er samansettur af góðum, hressum og flottum strákum og ég óska þeim góðs gengis! En ég reyni að líta á björtu hliðarnar og ég hef Veru hérna og ég er í góðri vinnu sem er mjög góður vinnustaður með frábæru starfsfólki og hef eignast marga góða félaga sem hafa reynst mér vel síðan ég kom hingað fyrir 9 mánuðum. En samt líður mér þannig að ég hafi brugðist sjálfum mér á þann hátt að ég kom hingað í ákveðnum tilgangi og mér er ekki að takast að uppfylla hann. En verður maður ekki að þrauka þeta? en ég sé ljósið við endan á þessu því það styttist bara í það að ég komi til ísafjarðar og ég get ekki beðið að koma í faðm fjallanna og í flottasta og besta bæin á landinu:D. Það held ég nú,ég varð bara að koma þessu frá mér þetta hfur nebblega verið að naga mig síðan á laugardagin þegar komið var fram við mig af ákveðnum aðila eins og ég væri bara einhvert leikfang! og mér hefur ekki liðið neitt frábærlega síðan.
Takk fyrir mig í bili þarf að fara að taka mig saman í andlitinu!!
14. júní 2006 klukkan 03:36
Ásgeir Guðmundsson 8 athugasemdir
Jæja góðan dagin...Nú er liðin góður tími síðan ég bloggaði síðan og af því tilefni að þá ætla ég að skella inn nokkrum línum. Vera er mætt í bæin og erum við búin að gera íbúðina aðeins heimilislegri með hjálp móður hennar Deddu að þá höfum við fengið gjafir sendar og svonna þakka henni kærlega fyrir. Nú tímabilið hafið af krafti og það byrjaði ekkert rosalega vel hjá mér því ég komst ekki í hóp í fyrstu 2 leikjunum og við það að fá slíka "höfnun" að þá eflist maður bara eða að þá hef ég lent í þessu áður og bara vaxið og lagt meira á mig við e-ð svona og er nú búin að ná mér í pláss í hópnum og við erum einmitt að fara að spila á morgun á móti Dalvík/reynir fyrir norðan og ég hlakka mikið til að fá að spreyta mig á Íslandsmótinu með hetti. Nú loksins er komið sumar eða það vona ég allaveganna:) og búið að vera mjög gott veður hér þessa vikunna og t.d. 18 og 20 stiga hiti hér um helgina, eins og vænt er um sumrin að þá fer fólk í frí og það á einnig við um mína fjölskyldu sem ætlar að kíkja hingað austur 16 júní og ætla að vera hér í viku í sumarbústað á Úlfstöðum sem er bústaðabyggð jájá. Ég vil óska öllum stútendum til hamingju með áfangan og þeir sem buðu mér í veislur takk kærlega fyrir en því miður komst ég ekki en færi þeim heillaróskir.
Ekki meira í bili og nú tekur við undirbúningur fyrir HM sem byrjar eftr 5 daga og erum við íbúar í þessari íbúð búin að fjárfesta í sýn þó svo að kvennpeningurinn hérna eigi lítið eftir að horfa en hún kannski bara neyðist til þess:)
04. júní 2006 klukkan 23:19
Ásgeir Guðmundsson 1 athugasemd
eru þið ekki að djóka með þetta veðurfar hér á þessu landi? ég hélt að það væri komið sumar en nei haldiði ekki að það sé ekki bara farið að snjóa hér á héraði og allt í bullandi kulda:) Ég sem hélt að þegar vel væri liðið á mai að þá væri þetta ekki hægt!! Annars þá er ég núna bara einn í búinu þar sem dóri er þessa stundina á leið til ísó því hann er e-ð meiddur og getur ekki unnið, en ég verð svosem ekki lengi einn sem er bara af hinu góða því það styttist í veru aðeins 3 dagar og ef til vill e-r gestur með henni? hver veit. Svo er tímabilið að byrja með stæl og það er leikur á þriðjudag á móti neista og spurningin er hvort maður sé nógu góður til að komast í liðið því hingað hafa komið 11 leikmenn frá síðasta tímabili sem er bara næstum byrjunarlið. En það þýðir ekkert að leggja árar e-ð í bát. Nú svo er ég að fá síðbúna afmælisgjöf á þriðjudaginn, því M&P eru að gefa mér nýtt rúm enda veitir ekki af að fá aðeins breiðara rúm svo maður verði úthvíldur og hafi pláss á komandi nóttum:)
En ég þarf að halda áfram að gera hreint og fínt hérna fyrir gestina....læt heyra í mér
21. maí 2006 klukkan 19:01
Ásgeir Guðmundsson 7 athugasemdir
Já helgin senn að enda komið og sumarið hafið? tja ég spyr mig:) Dagurin í gær var magnaður og þvílíkt veður vááá, lýktist föstudeginum fyrir viku og ég er ekki frá því að ég hafi fengið e-ð tan en ekki bara bruna eins og sumir vilja halda fram. Byrjaði föstudagin snemma og honum lauk seint!! var að vinna í 15 tíma. Fór í vinnu klukkan 6:30 að staðartíma og hann gekk vel og hratt þangað til um klukkan 16:30 þegar ég var sendur niðrá firði með pakka sem voru týndir einhversstaðar og fór s.s. á Rayðarfjörð, Eskifjörð, Norðfjörð (Neskaupsstað) og svo til baka til Reyðarfjarðar og átti þar að taka kæliskápa upp á hérað (Egilssaði) en akkurat þegar ég kom þangað að þá sprakk dekkið hjá mér um kl: 19 og það var svo mikið vesen því felgulykillinn passaði ekki á rærnar og þá kom viðgerðarmaður til að redda þessu og þegar því var lokið og varadekkið átti að fara og það var staðsett undir bílnum að þá náði hann (viðgerðarmaðurinn) því ekki undan svo hann þurfti að fara á verkstæðið og splæsa á nýtt dekk og það gekk bara vel, þannig að ég tafðist þar í 2 tíma og átti eftir að fara á Fáskrúðsfjörð þannig að ég var ekki komin upp á Egilsstaði fyrr er 21:30 takk fyrir pent. En það góða við þetta að ég var á yfirvinnukaupi allan tíman svo ég græddi allaveganna e-ð á þessu. Nú svo var ég bara að vinna frá 7 til 13 í gær og fór svo að línuvarðast í leik hjá kvk liði Hattar sem þær unnu og fór svo í grill hjá hetti og við vorum góðir þar og sprækir og sló sonur eins leikmannsins í gegn aðeins 1 árs gamall:).
Svo í dag var æfingarleikur hjá okkur í mfl. Hattar við Hugin sem er í 2.deild og við gjörsamlega sýndum þeim hvar davíð keypti ölið því leikurinn fór 8-0 fyrir okkur og þess má geta að Halldór Ingi spilaði í 45 mín, sem framherji og eins og honum er lagið náði hann að þenja marknetin ekki einu sinni heldur tvisvar og eitt með skalla stöngin inn, en ég á hinn bógin varð að sætta mig við það að vera meiddur og horfa á þetta allt saman af hliðarlínunni. En þessi meiðsl mín hafa skánað að undanförnu því að læknirinn sagði að þetta hafi verið smá tognun og lét mig fá undrakrem sem ég nota statt og stöðugt þessa daganna og virkar vel.
en nóg af þessu í bili...P.S. vil óskar ykkur góðs gengis í því sem þið eruð að gera og það styttist í það að The sweet Vera Dögg mætir á héraði og þá verður sko partý:D
08. maí 2006 klukkan 05:27
Ásgeir Guðmundsson 3 athugasemdir
Já einhverntíman er allt fyrst! ég hef fengið að kynnast því undanfarna daga eða alveg síðan á sunnudagin s.l. Ég vaknaði upp á sunnudagsmorgninum með verk í náranum og ef þetta eru ekki algengustu meiðslin í boltanum í dag að þá veit ég ekki. Ég fékk símaviðtal hjá lækni í dag og hann bókaði mig hjá sér á morgun, en þetta lýtur ekki vel út þar sem ég er með stanslausan verk sem lýsir sig þannig að ég fæ einhverskonar stíng í náran hægra megin, en ég vona að þetta verði mér ekki til hömlunar í sumar því ég hef horft á félaga mína í boltanum hrynja í þessi meiðsli og ég nenni ekki að standa í því enda hef ég verið án meiðsla allan minn feril 7,9,13:) En fleira héðan:) ég upplifði einn heitasta dag ævi minnar á íslandi á síðasta föstudag þar sem hitinn hérna var 18-19 gráður á celsiusskala:) og það á að stefna á e-ð álíka á laugardagin og sunnudagin og það er nú bara af því góða, aldrei að vita nema að maður verði orðin nokkuð tanaður eftir helgina;).
En ég skal leyfa ykkur að fylgjast með þessum afdrifaríku dögum í lífi mínu og vera duglegri að setja e-ð hérna inn. P.S. ég vil minna ykkur á gestabókina;) enda er kurteisi að kvitta a.m.k. einu sinni
05. maí 2006 klukkan 02:30
Ásgeir Guðmundsson 4 athugasemdir